Guðmundur enn efstur í A flokki



Guðmundur Kjartansson (2314) er efstur með 2,5 vinning á Haustmóti TR að lokinni 3. umferð sem fram fór í kvöld.  Guðmundur gerði jafntefli við Davíð Kjartansson (2291).  Tómas Björnsson (2162), Jóhann H. Ragnarsson (2068) og Stefán Bergsson (2135) eru næstir með 2 vinninga. 

Fjórða umferð fer fram á sunnudag og hefst kl. 14. 

Stephen Jablon (1965) og Dagur Ragnarsson (1761) eru efstir í b-flokki með 2,5 vinning. 

Birkir Karl Sigurðsson (1597) og Oliver Aron Jóhannesson (1645) eru efstir í c-flokki með 2,5 vinning.

Rafnar Friðriksson (1407), Dawid Kolka (1366) og Vignir Vatnar Stefánsson (1444) eru efstir í d-flokki (opnum flokki) með fullt hús.