Baráttan var afar jöfn á fimmtudagsmóti hjá Taflfélagi Reykjavíkur í gærkvöldi en fyrir síðustu umferð áttu fimm möguleika á að ná efsta sætinu. Að lokum urðu fjórir efstir og jafnir með fjóra vinninga en Guðmundur K. Lee, sem hefur verið á mikilli siglingu undanfarið, varð efstur á stigum. Fimmtudagsmót eru öll fimmtudagskvöld í skákhöll TR að Faxafeni 12. Þau hefjast 19:30 (húsið opnar upp úr 19:00) og standa yfirleitt til um 21:30 eða þar um bil. Lokastaðan í gærkvöldi varð annars:
1-4 Guðmundur K. Lee 5
Jón Úlfljótsson 5
Elsa María Kristínardóttir 5
Birkir Karl Sigurðarson 5
5-7 Veronika Magnúsdóttir 4
Gauti Páll Jónsson 4
Kjell Vaalerhaugen 4
8 Kristinn A. Kristinsson 3.5
9-11 Ingvar Vignisson 3
Björgvin Kristbergsson 3
Guðmundur Gunnlaugsson 3
12-13 Óskar Long Einarsson 2
Pétur Jóhannesson 2
14 Eysteinn Högnason 0.5