Guðmundur Kjartansson (2314) er efstur á Haustmóti TR með 5 vinninga að lokinni 6. umferð sem fram fór í kvöld. Guðmundur vann Björn Jónsson (2045). Davíð Kjartanssyni (2291), sem vann Þorvarð F. Ólafsson (2174) er annar með 4½ vinning. Sverrir Örn Björnsson (2158) og Jóhann H. Ragnarsson (2068) eru í 3.-4. sæti með 4 vinninga en sá fyrrnefndi vann þann síðarnefnda. Sjöunda umferð fer fram föstudaginn 14. október og hefst kl. 19:30.
A-flokkur:
Úrslit 6. umferðar:
1 | Bergsson Stefan | ½ – ½ | Bjornsson Tomas |
2 | Bjornsson Sverrir Orn | 1 – 0 | Ragnarsson Johann |
3 | Kjartansson Gudmundur | 1 – 0 | Jonsson Bjorn |
4 | Baldursson Haraldur | 1 – 0 | Valtysson Thor |
5 | Kjartansson David | 1 – 0 | Olafsson Thorvardur |
Staðan:
Rk. | Name | RtgI | Club/City | Pts. | Rp | rtg+/- | |
1 | IM | Kjartansson Gudmundur | 2314 | TR | 5 | 2389 | 5,3 |
2 | FM | Kjartansson David | 2291 | Víkingar | 4,5 | 2352 | 7,1 |
3 | Bjornsson Sverrir Orn | 2158 | Haukar | 4 | 2230 | 8,6 | |
4 | Ragnarsson Johann | 2068 | TG | 4 | 2244 | 21,1 | |
5 | FM | Bjornsson Tomas | 2162 | Goðinn | 3 | 2126 | -4,5 |
6 | Olafsson Thorvardur | 2174 | Haukar | 2,5 | 2110 | -8,3 | |
7 | Bergsson Stefan | 2135 | SA | 2,5 | 2091 | -6 | |
8 | Valtysson Thor | 2041 | SA | 1,5 | 1933 | -12,6 | |
Jonsson Bjorn | 2045 | TR | 1,5 | 1953 | -10,8 | ||
10 | Baldursson Haraldur | 2010 | Víkingar | 1,5 | 1993 | -2,5 |
Aðrir flokkar:
Dagur Ragnarsson (1761) er langefstur í b-flokki með 5 vinninga. Ingi Tandri Traustason (1823), Kristján Örn Elíasson (1906), Mikael Jóhann Karlsson, Stephen Jablon (1965) og Örn Leó Jóhannsson (1931) eru í 2.-6. sæti með 3½ vinning. Sjá nánar hér.
Birkir Karl Sigurðsson (1597) og Oliver Aron Jóhannesson (1645) eru efstir í c-flokki með 5 vinninga. Friðgeir Hólm (1667) er í þriðja sæti með 4 vinninga.
Vignir Vatnar Stefánsson (1444) er langefstur í d-flokki (opnum flokki) með fullt hús. Dawid Kolka (1366) og Sóley Lind Pálsdóttir (1345) eru í 2.-3. sæti með 4½ vinning.