Alþjóðlegi meistarinn Guðmundur Kjartansson (2434) sigraði í síðustu tveimur umferðunum í opnu alþjóðlegu móti sem var að ljúka í Barcelona. Í níundu umferð vann hann heimamann með 2234 stig og í þeirri síðustu Bandaríkjamann með 2310 stig. Guðmundur hlaut 7 vinninga og hafnaði í 14.-26. sæti. Árangur hans samsvarar 2406 stigum og lækkar hann um 2 stig. Sigurvegari mótsins með 8,5 vinning er indverski stórmeistarinn B. Adhiban (2567) en hann var númer 11 í stigaröð keppenda. Fjórir keppendur koma næstir með 8 vinninga, þeirra á meðal þýski stórmeistarinn Jan Gustafsson (2619) sem lagði Guðmund fyrr í mótinu.
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results