Gauti Páll Jónsson (1739) gerði í dag jafntefli við úkraínska skákmanninn Danylo Musiienko (2011) í annarri umferð EM ungmenna. Góð úrslit hjá Gauta sem teflir nú í fyrsta sinn á erlendri grundu en hann keppir í flokki 16 ára og yngri. Í þriðju umferð á morgun hefur hann svart gegn slóvakíska skákmanninum Samuel Sepesi (2019) en viðureignin hefst kl. 11.
Oliver Aron Jóhannesson og Símon Þórhallsson töpuðu sínum skákum en þeir tefla í sama flokki og Gauti Páll. Í flokki 18 ára og yngri tapaði Dagur Ragnarsson sinni viðureign.
- Úrslit, staða og pörun
- Heimasíða mótsins