Fimmtudagsmót í kvöld



Hin hefðbundnu fimmtudagsmót Taflfélags Reykjavíkur halda áfram í kvöld.  Tefldar verða 9 umferðir með 7 mínútna umhugsunartíma og hefst mótið kl. 19.30 en húsið opnar kl. 19.10.  Fríar veitingar í boði og sigurvegarinn fær að launum glæsilegan verðlaunapening.  Teflt er í skákhöll Taflfélags Reykjavíkur að Faxafeni 12 og þátttökugjald er kr 500 en frítt fyrir 15 ára og yngri.

Jafnframt er ítrekað að á síðasta móti vetrarins verður happdrætti þar sem dregnir verða út þrír vinningar, kr. 40.000, 20.000 og 10.000.  Allir sem hafa mætt á minnst fimm mót í vetur verða með í útdrættinum og því oftar sem er mætt, því meiri líkur eru á að verða dreginn út.  Síðasta mótið verður fimmtudaginn 28. maí og því er nægt tækifæri enn til að bæta mætinguna og jafnframt að ná fimm mótum ef enn hefur ekki verið mætt.