Vignir Vatnar Stefánsson sigraði eistneskan skákmann í þriðju umferð Evrópumeistaramóts ungmenna sem fór fram í dag. Mikilvægur sigur hjá Vigni sem kemur sér í hóp efstu manna eftir fyrsta þriðjung mótsins. Andstæðingar Vignis verða nú jafnóðum sterkari og í fjórðu umferð, sem hefst á morgun kl. 14 hefur hann svart gegn azerskum keppanda (1661).
Veronika Steinunn Magnúsdóttir tapaði fyrir ísraelskum keppanda og er ekki komin á blað. Veronika er með stigalægstu keppendunum í flokknum og því við búið að verkefnið væri erfitt. Það er þó nóg eftir af mótinu og Veronika kemur vafalaust sterk til leiks á morgun þegar hún stýrir hvítu mönnunum gegn dönskum keppanda (1600).
- Chess-Results
- Heimasíða mótsins