Landspítalinn vann nokkuð öruggan sigur í Skákkeppni fyrirtækja og stofnana. Liðið var þétttskipað og náðu bæði í flesta vinningana og unnu allar sínar viðureignir. Þetta er annað árið í röð sem TR heldur mótið, eftir að það hafði legið í dvala í áratug. Í sigurliðinu voru Davíð Kolka, Gunnar Freyr Rúnarsson, Jón Þór Bergþórsson og Jónas Jónasson.
Mikil stemming var í Faxafeninu og margir létu sjá sig annað hvort á sínu fyrsta móti, eða á sínu fyrsta móti í langan tíma, ásamt reynsluboltum. Verðlaunin voru ekki að verri endanum fyrir efstu þrjú liðin ásamt efsta liði án lánsmanns og efsta stigalausa liðinu – 10 skipta kort á hrað- og atskákmót TR. En þess má geta að það er einmitt sumarfimmtudagsmót í kvöld!
Í öðru sæti í mótinu varð hlaðvarpið Chess After Dark með sterkasta lánsmanninn, Vigni Vatnar Stefánsson. Í þriðja sæti varð Verzlunarskóli Íslands.


Strætó nældi sér í bæði aukaverðlaunin. Strætó-A var besta liðið án lánsmanns sem ekki var í 1.-3. sæti og Strætó-B besta stigalausa liðið.


11 lið mættu til leiks sem eru einu liði meira en í fyrra, þónokkur ný lið og nokkur lið tóku þátt tvö ár í röð.
Mótið er á chess-results með öllum einstaklingsúrslitum.
Mótsstjóri var Gauti Páll Jónsson og skákstjóri Jon Olav Fivelstad.
Mótið verður haldið að ári, miðvikudaginn 21. apríl 2027, alltaf daginn fyrir Sumardaginn fyrsta.
Taflfélag Reykjavíkur Elsta og virkasta skákfélag landsins
