Þeir Birkir Karl Sigurðsson, Eiríkur Örn Brynjarsson og Páll Andrason mættu galvaskir til Vestmannaeyja ásamt fararstjóra og formanni TR, Óttari Felix Haukssyni, nú um helgina til að taka þátt í Íslandsmóti 15 ára og yngri. Árangur drengjanna var mjög góður og félaginu til sóma:
- Eiríkur Örn hafnaði í 2. sæti í flokki 14 ára með 7 vinninga af 9 og í 3. sæti á drengja- og telpnameistaramóti Íslands 2008
- Birkir Karl hafnaði í 3. sæti í flokki 12 ára með 6 vinninga af 9
- Páll hafnaði í 3. sæti í flokki 14 ára með 5,5 vinning af 9