Samkvæmt útreikningum reiknimeistara hefur Dagur Arngrímsson náð 2399,65 stigum. Ef FIDE námundar rétt er Dagur kominn með 2400 eló stig og ætti því að vera útnefndur alþjóðlegur meistari á næsta þingi FIDE.
TR óskar Degi til hamingju með góðan árangur undanfarið og með titilinn, ef við gefum okkur að rétt sé reiknað.