Daði á siglingu á Politiken



Daði Ómarsson (2091) sigraði Danann,  Preben Nielsen (1929), í sjöundu umferð Politiken Cup sem fram fór í dag.  Daði hefur 4 vinninga í 85.-131. sæti en hann tapaði tveimur skákum án þess að tefla.

Atli Antonsson (1720) gerði jafntefli við Danann,  Lene Kuntz (1435), og er með 2 vinninga í 260.-288. sæti.

Alþjóðlegi meistarinn, Bragi Þorfinnsson (2377) og Bjarni Jens Kristinsson (1985) unnu sínar viðureignir en Ólafur Gísli Jónsson (1899) tapaði.  Bragi er efstur Íslendinganna með 5 vinninga en Daði kemur næstur með 4 eins og áður segir.

Þrír skákmenn eru efstir og jafnir með 6,5 vinning; stórmeistararnir Parmerian Negi (2590), Indlandi, Vladimir Malakhov (2707), Rússlandi og Tiger Hillarp-Persson (2596), Svíþjóð.

Í áttundu umferð sem fer fram á morgun kl. 11 mætir Daði Dananum,  Michael Nguyen (2196), en Atli mætir Dananum, Julius Mølvig (1256).

Að þessu sinni eru 307 skákmenn skráðir í aðalmót Politiken Cup en þar af eru fimm Íslendingar og á meðal þeirra eru tveir úr Taflfélagi Reykjavíkur; Daði Ómarsson (2091) sem er einn efnilegasti skákmaður landsins og Atli Antonsson (1720), sem snýr nú aftur að skákborðinu eftir nokkurra ára hlé.  Aðrir Íslendingar á mótinu eru alþjóðlegi meistarinn, Bragi Þorfinnsson (2377) úr Taflfélagi Bolungarvíkur, Bjarni Jens Kristinsson (1985) úr Helli og Ólafur Gísli Jónsson (1899) úr KR.

Stigahæstur keppenda er rússneski stórmeistarinn, Vladimir Malakhov (2707)  en margir þekktir skákmenn taka þátt, s.s. danski stórmeistarinn, Peter Heine Nielsen (2680), hollenski stórmeistarinn, Sergei Tiviakov (2674) og rússneski stórmeistarinn, Alexey Dreev (2660).

Heimasíða mótsins