Dagana 24-25 nóvember fór fram Atskákkepni taflfélaga í faxafeni 12. Að þessu sinni voru tólf lið skráð til leiks og telfdar níu skákir á tveimur kvöldum. Nokkuð var um þéttar og vel mannaðar sveitir og fyrirfram var erfitt að veðja um niðurstöðu mótins. Strax í þriðju umferð mættust sterkar sveitir. Þar hafði TR-a sveit betur gegn Skákdeild Fjölnis a-sveit og Breiðablik a-sveit hafði betur gegn Taflfélagi Vestmannaeyja. Héldu þessar fyrrnefndu sveitir uppteknum takti og héldu áfram að vinna sínar viðureignir.
Í lok fimmtu umferðar mættust að lokum A-sveit TR og Breiðabliks. Reyndist viðureignin nokkuð jöfn en Breiðablik hafði betur með minnsta mun 3½-2½ sem nægði til vinna viðureignina og var það að einhverju úrslitaviðureign mótsins.
Á lokadeginum héldu báðar sveitir áfram sinni sigurgöngu og unnu sínar viðureignir
Eftir níu umferðir voru það Breiðablik sem voru þess vegna sigurvegarar með fullt hús 18 liðsstig. Í öðru sæti kom Taflélag Reykjavíkur a-sveit með 16 stig og í þriðja sæti var það Skákdeild Fjölnis með 13 stig.

Sigurlið Breiðabliks: Arnar Milutin, Hilmir Freyr, Benedikt Briem, Stephan Briem, Vignir Vatnar, Birkir Ísak

TR-a sveit: Ingvar Wu, Adam, Daði, Jón Viktor, Gauti Páll

Fjölnir A-sveit: Helgi Árnason, Jón Árni, Jón Trausti, Dagur, Bragi, Oliver
🥇Breiðablik a-sveit 18
🥈Taflfélag Reykjavíkur a-sveit 16
🥉Skákdeild Fjölnis a-sveit 13

Lokastaðan eftir 9. umferðir
Taflfélag Reykjavíkur þakkar félögunum fyrir þátttöku og vonast til að sjá enn fleiri sveitir á næsta ári.
Lokastaða mótsins á chess-results:
Taflfélag Reykjavíkur Elsta og virkasta skákfélag landsins