Alþjóðlegi skákmeistarinn Bragi Þorfinnsson er genginn í raðir Taflfélags Reykjavíkur. Hann kemur úr Taflfélagi Bolungarvíkur þar sem hann hefur alið manninn síðan 2008 og varð íslandsmeistari með félaginu í fjórgang árin 2009, 2010, 2011 og 2012.
Bragi stimplaði sig rækilega inn er hann varð Ólympíumeistari með U16 landsliði Íslands árið 1995. Hann varð alþjóðlegur meistari árið 2003. Bragi var meðal sigurvegara á skoska meistaramótinu með 7 vinninga af 9 árið 2012. Ári síðar kom fyrsti stómeistaraáfanginn eftir frábæra frammistöðu í ensku deildakeppninni (4NCL).
Bragi hefur sigrað á fjölmörgum mótum hérlendis og mun styrkja Taflfélag Reykjavíkur mikið á komandi skákvertíð. Fyrsta verkefni hans með félaginu verður að verja meistaratitil félagsins í Hraðskákkeppni taflfélaga sem hefst nú í byrjun ágúst.
Hann er annar meistarinn sem gengur í raðir félagsins á þessu sumri, en áður hafði stórmeistarinn Henrik Danielsen komið til félagsins frá Taflfélagi Vestmannaeyja.
Taflfélag Reykjavíkur býður Braga hjartanlega velkominn í sínar raðir og óskar honum góðs gengis á komandi vertíð!