A-flokkur Boðsmóts T.R. verður í ár alþjóðlegt mót með möguleikum á AM-áföngum. Mótið verður 10 manna lokaður flokkur og fer fram dagana 17.-26. september í Skákhöllinni að Faxafeni 12. Eftirtaldir munu tefla í mótinu:
AM Jón Viktor Gunnarsson 2427
FM Esben Lund 2396
AM Bragi Þorfinnsson 2389
FM Ingvar Þór Jóhannesson 2344
FM Guðmundur Kjartansson 2306
AM Kestutis Kaunas 2273
Domantas Klimciauskas 2162
Andrzej Misiuga 2147
Daði Ómarsson 1951
Matthías Pétursson 1919
Til að ná áfanga að alþjóðlegum meistaratitli þarf 7 vinninga úr 9 skákum.
Taflmennska hefst kl.17 alla dagana. Dregið verður um töfluröð sunnudagskvöldið 16. september kl.20.