Boðsmót TR 2022
Boðsmót TR verður nú endurvakið, og haldið sem fimm umferða helgarkappskákmót helgina 3.-5. júní. Mótið er öllum opið og teflt verður í einum flokki. Teflt verður í húsnæði Taflfélags Reykjavíkur, Faxafeni 12. Athugið að engar yfirsetur eru leyfðar í mótinu. Tímamörk í mótinu verða 90 mínútur á alla skákina, auk 30 sekúndna viðbótatíma við hvern leik. Enginn auka tími eftir 40 leiki. Mótið var haldið nær samfleytt frá 1968-2007 og nú endurvakið 2022 eftir 15 ára dvala.
Dagskrá:
- umferð: Föstudagurinn 3. júní klukkan 18:30
- umferð: Laugardaginn 4. júní klukkan 11:00
- umferð: Laugardaginn 4. júní klukkan 17:00
- umferð: Sunnudaginn 5. júní klukkan 11:00
- umferð: Sunnudaginn 5. júní klukkan 17:00
Þátttökugjöld: 4000kr.
2000kr. fyrir 17 ára og yngri
Ókeypis fyrir GM/IM og TR-inga 17 ára og yngri
Þessum er boðið sérstaklega í hið endurvakna Boðsmót 2022 og borga því ekki þáttökugjöld: Öllum fyrrum sigurvegurum mótsins: Sjá hér. Öllum í U25 landsliðshópnum (16 til 25 ára yfir 2000 elo). Öllum í kvennalandsliðshópnum.
Skákstjórn: Ríkharður Sveinsson og Daði Ómarsson
Verðlaunafé í mótinu:
- 40% af samanlögðum þáttökugjöldum
- 30% af samanlögðum þáttökugjöldum
- 15% af samanlögðum þáttökugjöldum
Unglingaverðlaun (15 ára og yngri): 5000 króna inneign í Skákbúðina
Oddastig (tiebreaks): 1. Buchholz (-1) 2. Buchholz 3. Innbyrðis úrslit 4. Sonneborn-Berger 5. Oftar svart.