Barna- og unglingam.mót Rvk fer fram sunnudaginn 22. febrúar



Barna- og unglingameistaramót Reykjavíkur, sem og Stúlknameistaramót Reykjavíkur, fer fram sunnudaginn 22. febrúar í félagsheimili T.R. Faxafeni 12.

Taflið hefst kl.14 og stendur til ca. kl. 18. Tefldar verða 7 umferðir eftir svissnesku kerfi með umhugsunartímanum 15 mín. á skák. 

 

Teflt verður í tveimur flokkum: opnum flokki og stúlknaflokki.

Verðlaun verða veitt fyrir þrjú efstu sætin í mótinu og þar fyrir utan hlýtur sigurvegarinn titilinn Unglingameistari Reykjavíkur 2015, sé hann búsettur í Reykjavík eða félagi í reykvísku taflfélagi.

Einnig verða veitt verðlaun fyrir þrjár efstu stúlkurnar og þar fyrir utan hlýtur efsta stúlkan titilinn Stúlknameistari Reykjavíkur 2015, sé hún búsett í Reykjavík eða félagi í reykvísku taflfélagi.

Til viðbótar verða veitt verðlaun fyrir efsta sætið í aldursflokkum 13-15 ára (1999-2001), 11-12 ára (2002-2003), 9-10 ára (2004-2005) sem og 8 ára og yngri (2006-) í báðum flokkum (opna flokknum og stúlknaflokknum).

 

Mótið er opið öllum krökkum 15 ára og yngri (fædd 1999 og síðar).

 

Núverandi Reykjavíkurmeistarar eru Vignir Vatnar Stefánsson og Veronika Steinunn Magnúsdóttir.

 

Skákmótið hefst kl. 14 og er aðgangur ókeypis.

 

Skráning fer fram hér.

 

Skráðir keppendur.

  • Mótið 2014
  • Unglingameistarar Rvk
  • Stúlknameistarar Rvk