Þriðjudagsmót í atskák í kvöld – 2 flokkar



Taflfélag Reykjavíkur hyggst halda vikuleg atskákmót á þriðjudagskvöldum fyrir skákmenn með 1400 skákstig eða meira. Með þessu vill félagið koma til móts við þær fjölmörgu raddir í skáksamfélaginu sem óskað hafa eftir fleiri atskákmótum.

Tefldar verða fjórar umferðir með umhugsunartímanum 15 mínútur á skák og bætast 5 sekúndur við eftir hvern leik (15m+5s). Teflt er í tveimur flokkum: 1400-1899 og 1900+. Mótin eru opin öllum sem uppfylla stigalágmarkið. Mótin verða reiknuð til alþjóðlegra atskákstiga. Aðgangur er ókeypis.

Taflið hefst klukkan 19:30 og áætlað er að mótunum ljúki um kl.22:15. Teflt er í húsakynnum Taflfélags Reykjavíkur að Faxafeni 12.