Það var að venju hart barist á Grand Prix móti Fjölnis og TR í Skákhöllinni Faxafeni á fimmtudagskvöldið.
Arnar E. Gunnarsson gerði sér lítið fyrir og lagði alla andstæðinga sína að velli og hreppti efsta sætið með fullt hús vinninga.
Í ððru sæti varð Arnar Þorsteinsson með sex vinninga af sjö mögulegum, tapaði aðeins fyrir nafna sínum.
Þriðji í röðinni með 5 vinninga varð hinn efnilegi Daði Ómarsson. Kjristján Örn Elíasson hlaut fjórða sætið og Vigfús Vigfússon það fimmta.
Arnar E. Gunnarsson hefur reynst mönnum illviðráðanlegur í sjö mínútna skákunum og hefur nú tekið örugga forystu í Grand Prix mótaröðinni.
Grand Prix mótaröðin heldur áfram næstkomandi fimmtudagskvöld og eru allt skákáhugafólk hjartanlega velkomið.