Undir 2000 mótið
Þátttökurétt hafa allir þeir sem hafa minna en 2000 Elo-stig, þ.e. allt frá 0 að 1999 skákstigum. Tefldar eru sjö umferðir eftir svissneska kerfinu og er umhugsunartími 90 mínútur fyrir alla skákina auk 30 sekúndna sem bætast við eftir hvern leik. Einnig bætast við 15 mínútur á klukkuna eftir 40 leiki. Leyfðar eru tvær yfirsetur í umferðum 1-5 sem skal tilkynna skákstjóra fyrir lok umferðarinnar á undan en 1/2 vinningur fæst fyrir yfirsetu. Teflt er tvivar í viku, á miðvikudagskvöldum kl. 18.30 og Sunnudögum kl: 13:00, í Skákhöll félagsins að Faxafeni 12.
Mótið verður reiknað til alþjóðlegra skákstiga.
Dagskrá
1. umferð: 1. október kl. 18.30
2. umferð: 5. október kl. 13.00
3. umferð: 8. október kl. 18.30
4. umferð: 12. október kl.13.00
5. umferð: 15. október kl. 18.30
6. umferð: 19. október kl. 13.00
7. umferð: 22. október kl. 18.30
Sjálfkrafa tap dæmist á keppanda sem mætir á skákstað meira en 30 mínútum eftir upphaf umferðar.
Tímamörk: 90 mín á alla skákina + 30 sek viðbót eftir hvern leik. 15 mínútur bætast við eftir 40 leiki.
Verðlaun: 1. sæti kr. 35.000, 2. sæti kr. 25.000, 3. sæti kr. 10.000. Hort-kerfi gildir.
Röð mótsstiga (tiebreaks): 1. Buchholz (-1) 2. Buchholz 3. Innbyrðis viðureign 4. Fleiri sigrar
Þátttökugjöld: 18 ára og eldri kr. 6.000, kr. 5.000 fyrir félagsmenn í TR. 17 ára og yngri kr. 4.000, 2.000 kr fyrir félagsmenn í TR.
Fyrirspurnir: [email protected]