Meistaramót Truxva á morgun!



Meistaramót Truxva verður haldið miðvikudagskvöldið 1. júní, í skáksal Taflfélags Reykjavíkur að Faxafeni 12. Mótið er nú haldið í sjötta sinn og er opið öllum skákmönnum. Taflið hefst stundvíslega klukkan 18:30.

Tefldar verða 11 umferðir með tímamörkunum 3m+2s. Mótið er reiknað til alþjóðlegra hraðskákstiga.

Verðlaun:

  • 1.sæti: 25.000 kr.
  • 2.sæti: 15.000 kr.
  • 3.sæti: 10.000 kr.
  • U2000: Bókaverðlaun
  • Efsta TR-ungmennið: Bókaverðlaun

Meistaramótið markar lok starfsárs ungmennahreyfingar Taflfélags Reykjavíkur. Margir af sterkustu hraðskákmönnum þjóðarinnar taka þátt. Sigurvegarar fyrri móta:

Þátttökugjald er 1000kr fyrir fullorðna en 500kr fyrir 17 ára og yngri. Ókeypis fyrir IM og GM. Skráning í mótið fer fram í gegnum hefðbundið skráningarform.

Skráningarform 

Þegar skráðir