Helgina 10-12 desember fer fram næsta mót í Bikarsyrpuröð Taflfélags Reykjavíkur. Þetta er annað mótið af fimm sem haldið er á tímabilinu 2021-22. Tefldar verða 7 kappskákir yfir þessa þrjá daga. Fer mótið fram í Taflfélagi Reykjavíkur, Faxfeni 12.
Fyrir börn sem vilja taka framförum í skák þá er gott að byrja sem fyrst að tefla í kappskákmótum, en hingað til hefur þeim börnum sem vilja tefla á “alvöru mótum” einkum staðið til boða að taka þátt í opnum mótum. Þar er styrkleikamunur oft mikill og mótin taka langan tíma, auk þess sem mörgum börnum óar við tilhugsuninni um að tefla við fullorðna á sínum fyrstu kappskákmótum. Bikarsyrpan er svarið við því. Þessi mótaröð TR er ekki síður sniðin að þörfum þeirra barna sem dreymir um að næla sér í sín fyrstu skákstig.
Einungis börn á grunnskólaaldri (fædd árið 2006 eða síðar) sem ekki hafa náð 1600 alþjóðlegum skákstigum geta tekið þátt í mótum Bikarsyrpunnar. Þannig er styrkleikamunurinn minni en ella og börnin njóta þess betur að tefla. Tímamörkin eru jafnframt styttri, og henta börnum betur en langar 90 mínútna skákir sem tíðkast á hefðbundnum kappskákmótum fullorðinna. Mótin uppfylla öll skilyrði Alþjóða skáksambandsins FIDE og eru reiknuð til alþjóðlegra skákstiga.
Annað mót Bikarsyrpunnar hefst föstudaginn 10. desember og stendur til sunnudagsins 12. desember. Tefldar eru 7 umferðir eftir svissnesku kerfi. Tímamörk eru 30 mínútur + 30 sekúndur á hvern leik og geta skákirnar því varað í allt að tvær klukkustundir. Þó svo mikilvægt sé að börnin vandi sig og noti tímann vel, þá má gera ráð fyrir að margar skákir taki mun styttri tíma.
Dagskrá:
1. umferð: 10. desember kl. 17.30 (fös)
2. umferð: 11. desember kl. 10.00 (lau)
3. umferð: 11. desember kl. 13.00 (lau)
4. umferð: 11. desember kl. 16.00 (lau)
5. umferð: 12. desember kl. 10.00 (sun)
6. umferð: 12. desember kl. 13.00 (sun)
7. umferð: 12. desember kl. 16.00 (sun)
Verðlaunaafhending fer fram strax að lokinni 7. umferð.
Tvær yfirsetur (bye) eru leyfðar í umferðum 1-5 og fæst 1/2 vinningur fyrir hvora yfirsetu. Merkja skal við fyrirhugaðar yfirsetur í neðangreindu skráningarformi. Annars skal tilkynna skákstjóra um yfirsetu við upphaf umferðarinnar á undan.
Sjálfkrafa tap dæmist á keppanda sem mætir á skákstað meira en 15 mínútum eftir að viðkomandi umferð hefst.
Þátttökugjald í mótið er 2.000kr. Börn sem eru félagar í TR greiða ekki þátttökugjald.
Sigurvegari hvers móts sem og efsta stúlkan hljóta að launum bikar. Verðlaunapeningur eru veittur fyrir 2. sæti og 3. sæti. Veglegur farandbikar verður veittur næsta vor fyrir besta samanlagðan árangur í mótum vetrarins og gilda þá mest fjögur mót. Þá verða veitt sérstök verðlaun fyrir besta samanlagðan árangur (fjögur mót) fyrir börn sem eru félagar í TR, en það eru einkatímar hjá einhverjum af sterkustu skákmönnum félagsins; 1. sæti gefur 5 einkatíma, 2. sæti gefur 3 einkatíma og 3. sæti gefur 2 einkatíma.
Skráning fer eingöngu fram í gegnum skráningarform hér að neðan. Hlökkum til að sjá ykkur!
Sigurvegari síðustu Bikarsyrpu var Markús Orri Jóhannsson
Síðasta bikarsyrpa: (22-24 okt)
Mótshaldari er Daði Ómarsson