Loks birtast heildarúrslitin á heimasíðu félagsins en þau höfðu áður birst á skak.is. Stórmótið fór fram sunnudaginn 12. ágúst síðastliðinn.
Stórmót Árbæjarsafns og Taflfélags Reykjavíkur fór fram inni í hinu skemmtilega Kornhúsi Árbæjarsafns á meðan úti geysaði rok og rigning. Tuttugu og níu skákmenn mættu til leiks á þetta skemmtilega skákmót sem er einskonar óopinbert upphaf á skákvertíðinni.
Gaman var að sjá að fólk á öllum aldri tók þátt í mótinu.
Úrslit urðu þau að Magnús Örn Úlfarsson og Daði Ómarsson urðu jafnir og efstir með 6 vinninga úr 7 skákum, en Magnús var úrskurðaður sigurvegari á stigum.
Mótið er haldið í samvinnu Árbæjarsafns og Taflfélags Reykjavíkur. Skákstjóri fyrir hönd Taflfélags Reykjavíkur var Torfi Leósson en mótsstjóri fyrir hönd Árbæjarsafns var Bergsveinn Þórsson.
- Myndir frá mótinu
Heildarúrslit:
| 1 | Magnús Örn Úlfarsson | 6 |
| 2 | Daði Ómarsson | 6 |
| 3 | Kjartan Másson | 5,5 |
| 4 | Gunnar Björnsson | 5 |
| 5 | Hilmir Freyr Heimisson | 5 |
| 6 | Davíð Kjartansson | 4,5 |
| 7 | Jóhanna B. Jóhannsdóttir | 4,5 |
| 8 | Oliver Aron Jóhannesson | 4,5 |
| 9 | Dagur Kjartansson | 4 |
| 10 | Elsa María Kristínardóttir | 4 |
| 11 | Jón Trausti Harðarson | 4 |
| 12 | Örn Leó Jóhannsson | 4 |
| 13 | Birkir Karl Sigurðsson | 4 |
| 14 | Jón Úlfljótsson | 3,5 |
| 15 | Óskar Long Einarsson | 3,5 |
| 16 | Vignir Vatnar Stefánsson | 3,5 |
| 17 | Ásgeir Sigurðsson | 3,5 |
| 18 | Mikhael Kravchuk | 3 |
| 19 | Jóhann Arnar Finnsson | 3 |
| 20 | Sigurlaug R. Friðþjófsdóttir | 3 |
| 21 | Sigurður Kristjánsson | 3 |
| 22 | Stefán Már Pétursson | 3 |
| 23 | Heimir Páll Ragnarsson | 2,5 |
| 24 | Björgvin Kristbergsson | 2,5 |
| 25 | Pétur Jóhannesson | 2,5 |
| 26 | Guðmundur Agnar Bragason | 2,5 |
| 27 | Hallgerður H. Þorsteinsdóttir | 2 |
| 28 | Júlíus Örn Finnsson | 2 |
| 29 | Baldur Einarsson | 1 |
Taflfélag Reykjavíkur Elsta og virkasta skákfélag landsins