Þórir Benediktsson hefur verið útnefndur heiðursmeðlimur í Taflfélagi Reykjavíkur. Stjórn félagsins mun afhenda honum formlegt skjal þess efnis ásamt heiðursorðu félagsins við hátíðlega athöfn á fimmtudagsmóti í kvöld.
Þórir er borinn og barnfæddur í Reykjavík og hefur alla sína tíð verið liðsmaður Taflfélags Reykjavíkur. Hann hefur verið afskaplega iðinn við kolann á mótum félagsins í gegnum árin og hefur varla misst úr mót hin síðari ár. Þá hefur Þórir unnið eitthvað smá af góðum verkum í garð félagsins ásamt því að styrkja lið þess verulega ár hvert í Íslandsmóti skákfélaga.
Stöðugleiki Þóris í skákinni er aðdáunarverður en hann hefur nú haldið jöfnum styrkleika í þónokkur ár og aðalmarkmið hans í dag er að komast yfir 2000 Elo-stig en Þórir hefur nú 1928 stig. Aðspurður segir hann þetta vera nokkuð raunhæft markmið en mikla vinnu og eljusemi þurfi til að ná því.
Að auki hefur Þórir verið í stjórn félagsins um árabil en fyrsta stjórnarsetuár hans var 2008-2009.
Um leið og stjórn Taflfélags Reykjavíkur óskar Þóri til hamingju með heiðursorðuna þakkar hún honum fyrir vel unnin störf og góða sigra við skákborðið fyrir hönd félagsins.
Taflfélag Reykjavíkur Elsta og virkasta skákfélag landsins