Stórmót Árbæjarsafns og Taflfélags Reykjavíkur



Stórmót Árbæjarsafns og Taflfélags Reykjavíkur fer fram
sunnudaginn 14. ágúst. Teflt verður í Árbæjarsafni og hefst
taflið kl. 14. Tefldar verða 7 umferðir með umhugsunartímanum
7 mín. á skák.

Á undan, eða kl.13, fer fram lifandi tafl, en lifandi taflið
er fyrir löngu orðinn árviss og skemmtilegur viðburður í
dagatali skákmanna.

Veitt verða verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í Stórmótinu,
12.000 kr., 8.000 kr. og 5.000 kr.

Þátttökugjöld í Stórmótinu eru kr. 1000 fyrir 18 ára og eldri,
en ókeypis fyrir yngri en 18 ára og eru þátttökugjöld
jafnframt aðgangseyrir í safnið. Þeir sem eiga ókeypis
aðgang í safnið, t.d menningarkort, þurfa ekki að borga
þátttökugjöld í mótið.

Ekkert kostar að taka þátt í Stórmótinu fyrir þá sem taka þátt
í lifandi taflinu.

Enn eru laus pláss í lifandi taflinu og leika peð, riddara,
biskup, hrók, kóng eða drottningu.

Áhugasamir hafi samband við Sigurlaugu Regínu í
sigurlaug.regina@internet.is. Skráningu í lifandi taflið
lýkur fimmtudaginn 11. ágúst. Þeir sem taka þátt í lifandi
taflinu þurfa að mæta á Árbæjarsafn þann 14. ágúst kl.12.30
til að fara í búninga.