Frábær byrjun hjá Daða á First Saturday



Daði Ómarsson (2150) hefur farið frábærlega af stað á First Saturday mótinu í Búdapest, Ungverjalandi.  Daði, sem teflir í lokuðum 10 manna AM flokki, hefur 1,5 vinning að loknum tveimur umferðum.  Í annari umferð lagði hann ungverska alþjóðlega meistarann, Pal Petran (2372).

Meðalstig flokksins eru 2261 stig og er Daði næststigalægstur keppenda.  7 vinninga þarf til að ná alþjóðlegum áfanga.

  • Heimasíða mótsins