Þröstur, Stefán og Frímann unnu í 2. umf. Rvk open



SM Þröstur Þórhallsson (2442), AM Stefán Kristjánsson (2472) og Frímann Benediktsson (1939) sigruðu sína andstæðinga í annari umferð Reykjavíkurskákmótsins.  Þröstur og Stefán lögðu stigalægri andstæðinga en Frímann sigraði Ólaf Þórsson (2199).  Hannes Hlífar og Kristján Örn gerðu jafntefli en aðrir TR-ingar töpuðu.

Sextán skákmenn eru efstir og jafnir með með fullt hús og þar á meðal er Þröstur. 

Þriðja umferð fer fram á morgun, fimmtudag, og hefst kl. 16 en teflt er í Listasafni Reykjavíkur við Tryggvagötu.

Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu mótsins og heimasíðu Skáksambands Íslands.