Þorvarður Ólafsson sigraði á öðlingamótinu.



Þorvarður Ólafsson sigraði með vinnings forskoti á öðlingamótinu sem lauk í gærkvöldi.  Hann endaði með 6 vinninga  úr 7 skákum eftir jafntefli við Eggert Ísólfsson. Taflfélag Reykjavíkur óskar honum til hamingju með sigurinn í mótinu. Halldór Pálsson og Eggert Ísólfsson urðu jafnir í öðru til þriðja sæti með 5 vinninga. Úrslit síðustu umferðar má sjá hér  og lokastaðan í mótinu  er aðgengileg hér.  Verlunarafhending og hraðskákmót öðlinga fer fram næsta miðvikudag kl 19.30.