Skákþing Reykjavíkur hefst sunnudaginn 8. janúar



SkakthingReykjavikurLogo17

Skákþing Reykjavíkur hefst sunnudaginn 8. janúar kl. 13. Tefldar verða níu umferðir eftir svissnesku kerfi. Tímamörk eru 90 mínútur og bætast við 15 mínútur eftir 40 leiki. 30 sekúndur bætast við eftir hvern leik alla skákina. Teflt er í húsnæði Taflfélags Reykjavíkur að Faxafeni 12.

Keppendur geta tekið tvær yfirsetur (bye) í umferðum 1-6. Leggja skal inn ósk um yfirsetu til skákstjóra áður en parað er í viðkomandi umferð. Hálfur vinningur fæst fyrir yfirsetu.

Athygli er vakin á því að umferðir á sunnudögum hefjast kl. 13:00.

Dagskrá

1. umferð sunnudag 8. janúar kl. 13.00
2. umferð miðvikudag 11. janúar kl. 19.30
3. umferð sunnudag 15. janúar kl. 13.00
4. umferð miðvikudag 18. janúar kl. 19.30
5. umferð sunnudag 22. janúar kl. 13.00
6. umferð miðvikudag 25. janúar kl. 19.30
7. umferð sunnudag 29. janúar kl. 13
8. umferð miðvikudag 01. febrúar kl. 19.30
9. umferð föstudag 03. febrúar kl. 19.30

Hraðskákmót Reykjavíkur fer fram sunnudaginn 5. febrúar kl. 13 og verður þá jafnframt verðlaunaafhending fyrir Skákþingið.

Tímamörk

90 mín á 40 leiki, síðan 15 mín, auk 30 sek eftir hvern leik alla skákina.

Skákstjórn

Yfirdómari mótsins verður Ríkharður Sveinsson (rz@itn.is / s.772 2990).

Aðalverðlaun

  • 1. sæti kr. 120.000
  • 2. sæti kr. 60.000
  • 3. sæti kr. 30.000

Stigaverðlaun

  • Besta frammistaða miðað við eigin stig (rating performance – eigin stig) – kr. 10.000.
  • U2000 og U1800 – kr. 10.000.
  • U1600, U1400, U1200, stigalausir – bókaverðlaun.

Æskulýðsverðlaun

  • Bókaverðlaun fyrir efstu stúlkuna og efsta piltinn í árgangaflokkum 2001-2003, 2004-2007, 2008 og yngri.

Fide stig gilda við úthlutun stigaverðlauna (íslensk stig til vara). Hver keppandi getur aðeins hlotið ein aukaverðlaun (ofangreind röð verðlauna gildir).

Þátttökugjöld (greiðist með reiðufé við upphaf móts).

kr. 5.000 fyrir 18 ára og eldri.
kr. 2.500 fyrir 17 ára og yngri.

Skráningarform

Skráðir keppendur

Keppt er um titilinn “Skákmeistari Reykjavíkur 2017” og hlýtur sá keppandi sem verður efstur þeirra sem eiga lögheimili í Reykjavík, eða eru félagsmenn í reykvísku skákfélagi, titilinn og farandbikar til varðveislu í eitt ár. Núverandi Skákmeistari Reykjavíkur er alþjóðlegi meistarinn Jón Viktor Gunnarsson.

Verði keppendur jafnir að vinningum í þremur efstu sætunum, verður verðlaunum skipt (Hort útreikningur), en stigaútreikningur (tiebreaks) látinn skera úr um verðlaunasæti. Í öðrum verðlaunaflokkum ganga verðlaun óskipt til þess sem hefur flest stig eftir stigaútreikning. Stigaútreikningur verður eftirfarandi: 1. Sonneborn-Berger 2. Innbyrðis úrslit 3. Fjöldi sigra 4. Median Buchholz.

Skákþing Reykjavíkur er reiknað til alþjóðlegra skákstiga. Skákir mótsins verða slegnar inn og birtar á pgn formi.

Vinsamlegast mætið tímanlega á skákstað til að staðfesta skráningu og greiða þátttökugjald. Skráningu lýkur 15 mínútum fyrir auglýst upphaf móts, þ.e. kl. 12.45.