Sigurjón sigraði á fimmtudagsmóti



Örn Leó Jóhannsson var lengst af í forystu á fimmtudagsmóti hjá Taflfélagi Reykjavíkur í gær en á meðan Örn tapaði fyrir Inga Tandra í 6. umferð og gerði jafntefli við Pál Snædal Andrason í síðustu umferð, vann Sigurjón Haraldsson báðar sínar skákir og náði þannig óskiptu fyrsta sæti. Úrslit í gærkvöldi urðu annars sem hér segir:

1 Sigurjón Haraldsson 6
2 Örn Leó Jóhannsson 5,5
3 Ingi Tandri Traustason 5
4 – 6.  Páll Snædal Andrason 4,5
Guðmundur Kristinn Lee
Birkir Karl Sigurðsson
7 – 11 Rafn Jónsson 4
Jón Úlfljótsson
Jón Trausti Harðarson
Eiríkur Örn Brynjarsson
Atli Jóhann Leósson
12 – 14 Vignir Vatnar Stefánsson 3,5
Stefán Már Pétursson
Csaba Daday
15 – 17 Unnar Bachmann 3
Gauti Páll Jónsson
Björgvin Kristbergsson
18 – 19 Óskar Long Einarsson 2,5
Kristinn Andri Kristinsson
20 Pétur Jóhannesson 2
21 Óttar Atli Ottóson
22 Hnikarr Bjarmi Franklinsson 0