Sigur hjá Guðmundi í þriðju umferð



Alþjóðlegi meistarinn Guðmundur Kjartansson sigraði franskan andstæðing sinn í þriðju umferð alþjóðlegs móts sem fer fram í Barcelona.  Guðmundur hefur því 2,5 vinning og er kominn á þær slóðir í tölfunni þar sem honum bera að vera.  21 keppandi hefur fullt hús vinninga.  Fjórða umferð hefst á morgun kl. 14.30 og þá hefur Guðmundur svart gegn sautján ára heimamanni með 2216 stig.

  • Heimasíða mótsins
  • Chess-Results