KORNAX mótið: Bein útsending frá 9. umferð



Níunda og síðasta umferðin í KORNAX mótinu – Skákþingi Reykjavíkur hefst í kvöld kl. 19.30.  Að venju verða sex viðureignir sendar út beint og má fylgjast með þeim hér.

Spennan er mikil á toppnum þar sem baráttan um sigur stendur á milli Davíðs Kjartanssonar og Omar Salama en þeir deila saman efsta sætinu með 7,5 vinning, 1,5 vinningi meira en næstu keppendur.  Þá munu úrslit einnig ráðast í stigaflokkunum en verðlaun eru fyrir bestan árangur í flokkum keppenda undir 2000, 1800 og 1600 stigum sem og í flokki stigalausra.

Viðureignirnar sem verða sendar beint út í kvöld eru:

  • Omar Salama – Mikael Jóhann Karlsson
  • Þór Már Valtýsson – Davíð Kjartansson
  • Daði Ómarsson – Einar Hjalti Jensson
  • Vigfús Óðinn Vigfússon – Halldór Pálsson
  • Lenka Ptacnikova – Haraldur Baldursson
  • Júlíus Friðjónsson – Sigríður Björg Helgadóttir
  • Úrslit, staða og pörun
  • Dagskrá og upplýsingar
  • Skákmeistarar Reykjavíkur
  • Mótstöflur síðustu ára
  • Myndir (JHR)
  • Skákir