KORNAX mótið 2013 – Skákþing Reykjavíkur



KORNAX mótið 2013 – Skákþing Reykjavíkur hefst sunnudaginn 6. janúar kl. 14. Tefldar verða níu umferðir eftir svissnesku kerfi og eru tímamörk 1½ klst. á alla skákina auk 30 sek. á leik. Umferðir fara fram á miðvikudögum og föstudögum kl. 19.30 og á sunnudögum kl. 14. Teflt er í húsnæði Taflfélags Reykjavíkur að Faxafeni 12.

 

Dagskrá:

1. umferð sunnudag 6. janúar kl. 14

2. umferð miðvikudag 9. janúar kl. 19.30

3. umferð föstudag 11. janúar kl. 19.30

4. umferð sunnudag 13. janúar kl. 14

5. umferð miðvikudag 16. janúar kl. 19.30

6. umferð föstudag 18. janúar kl. 19.30

7. umferð sunnudag 20. janúar kl. 14

8. umferð miðvikudag 23. janúar kl. 19.30

9. umferð föstudag 25. janúar kl. 19.30

Verðlaun:

1. sæti kr. 100.000

2. sæti kr. 50.000

3. sæti kr. 25.000

Besti árangur undir 2000 skákstigum kr. 10.000 (íslensk stig gilda)

Besti árangur undir 1800 skákstigum kr. 10.000 (íslensk stig gilda)

Besti árangur undir 1600 skákstigum – bókaverðlaun (íslensk stig gilda)

Besti árangur undir stigalausra – bókaverðlaun

Þátttökugjöld:

kr. 4.000 fyrir 16 ára og eldri
kr. 2.000 fyrir 15 ára og yngri

Teflt er um titilinn “Skákmeistari Reykjavíkur 2013” og hlýtur sá keppandi titilinn og farandbikar til varðveislu í eitt ár, sem verður efstur þeirra sem eiga lögheimili í Reykjavík, eða eru félagsmenn í reykvísku taflfélagi. Núverandi Skákmeistari Reykjavíkur er Björn Þorfinnsson.

Verði fleiri en einn keppandi jafnir að vinningum í þremur efstu sætunum, verður verðlaunum skipt, en stigaútreikningur látinn skera úr um verðlaunasæti.  Í aukaverðlaunaflokkum ganga verðlaun óskipt til þess, sem hefur flest stig eftir stigaútreikning.

Skákþingið er reiknað til alþjóðlegra skákstiga.

Skráning fer fram á heimasíðu Taflfélags Reykjavíkur.  Hægt er að fylgjast með skráningu hér.

Vinsamlegast komið tímanlega á skákstað til að staðfesta skráningu og greiða þátttökugjald. Athugið að skráningu lýkur 15 mínútum fyrir auglýst upphaf móts, þ.e. kl. 13.45.