Jólaskákmót TR og SFS 2013



Nú fer að líða að hinu árlega jólaskákmóti Taflfélags Reykjavíkur og Skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar.Þátttakendum hefur fjölgað síðastliðin ár og því verður fyrirkomulagi keppninnar breytt og í yngri flokki verður keppt í tveimur riðlum sunnudaginn  1. desember.

Suður riðill hefur keppni kl. 10.30 . Norður riðill hefur keppni kl. 14.00 (sjá skiptingu hér að neðan) Tvær efstu sveitir í hvorum riðli munu keppa til úrslita við sveitirnar úr hinum riðlinum um þrjú efstu sætin mánudaginn 2. desember kl. 17:00.

Keppni í eldri flokki verður mánudaginn 2. desember kl. 17:00. Upplýsingar: Yngri flokkur (1. – 7. bekkur)Keppnisstaður:  Taflfélag Reykjavíkur, Faxafeni 12Keppt verður í stúlkna og drengja flokkum (opnum flokkum). Heimilt er að senda  A, B, C o.s.frv. stúlknasveitir og A, B, C o.s.frv. drengjasveitir.  Í hverri sveit eru 4 keppendur og 0-2 til vara. Í yngri flokki verður keppt í tveimur riðlum sunnudaginn  1. desember.Suður riðill hefur keppni kl. 10.30 (sjá skóla hér að neðan)Norður riðill hefur keppni kl. 14.00 (sjá skóla hér að neðan) Tefldar verða 6 umferðir (hraðmót) eftir Monrad kerfi.Umhugsunartími: 10 mín. á skák.  Þátttökurétt hafa börn úr grunnskólum Reykjavíkur í  1.-7. bekk.  Mikilvægt er að liðsstjóri fylgi liðum hvers skóla.  Verðlaunaafhending verður að lokinni keppni. Tvær efstu sveitir í hvorum riðli munu keppa til úrslita við sveitirnar úr hinum riðlinum um þrjú efstu sætin mánudaginn 2. desember kl. 17:00.  Eldri flokkur (8. – 10. bekkur). Keppnisstaður:  Taflfélag Reykjavíkur, Faxafeni 12.Keppt verður í stúlkna og drengja flokkum (opnum flokkum). Heimilt er að senda  A, B, C o.sfrv. stúlknasveitir og A, B, C o.s.frv. drengjasveitir.  Í hverri sveit eru 4 keppendur og 0-2 til vara. Keppni í eldri flokki verður mánudaginn 2. desember kl. 17:00.Tefldar verða 6 umferðir (hraðmót) eftir Monrad kerfi.Umhugsunartími: 15. mín. á skák.  Þátttökurétt hafa unglingar úr grunnskólum Reykjavíkur í 8.-10. bekk. Verðlaunaafhending verður að lokinni keppni.  Þátttaka í báða flokka tilkynnist til skrifstofu Skóla- og frístundasviðs Reykjavíkur eigi síðar en föstudaginn 29. nóvember.  Ekki verður hægt að skrá lið á mótsstað.Skráning sendist á netfang: soffia.palsdottir@reykjavik.is   Skipting í riðla yngri flokks Yngri flokkur – Suður riðill (kl. 10.30):Árbæjarskóli  ●  Ártúnsskóli  ●   Breiðagerðisskóli   ●  Breiðholtsskóli   ●  Brúarskóli   Fellaskóli  Fossvogsskóli   ●  Grandaskóli   ●  Hagaskóli   ●  Háaleitisskóli   ●  Hlíðaskóli   Hólabrekkuskóli  Hraunkot   ●  Hvassaleitisskóli   ●  Klettaskóli   ●  Klébergsskóli   ●  Melaskóli   Norðlingaskóli  Réttarholtsskóli  ●   Selásskóli   ●  Seljaskóli   ●  Suðurhlíðarskóli ●  Ölduselsskóli Yngri flokkur – Norður riðill (kl. 14:00):Austurbæjarskóli  ●  Dalsskóli  ●  Foldaskóli  ● Háaleitisskóli  ● Hamraskóli Háteigsskóli  ●  Húsaskóli  Ingunnarskóli  ●  Ísaksskóli  ●  Kelduskóli  ● Landakotsskóli  ●   Langholtsskóli  ● Laugalækjaskóli  Laugarnesskóli   ● Rimaskóli  ● Sæmundarskóli  ● Vættaskóli  ● Vesturbæjarskóli   ●  Vogaskóli  Taflfélag Reykjavíkur og Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar vonast til að sem flestir þessara skóla sjái sér fært að senda sveitir til leiks á eitt af skemmtilegustu mótum vetrarins! Björn JónssonFormaður Taflfélags Reykjavíkur