Jólaskákmót T.R. og ÍTR fer fram 5. og 6. desember



Jólaskákmót Taflfélags Reykjavíkur og Íþrótta- og tómstundasviðs Reykjavíkur fer fram dagana 5. og 6. desember:

Keppnisstaður:  Taflfélag Reykjavíkur, Faxafeni 12.

Yngri flokkur (1. – 7. bekkur).

Keppt verður í stúlkna og drengja flokkum. Heimilt er að senda A, B, C o.s.frv. stúlknasveitir og A, B, C o.s.frv. drengjasveitir.  Í hverri sveit eru 4 keppendur og 0-2 til vara.

Keppni í yngri flokki verður sunnudaginn  5. desember kl. 14:00.

Tefldar verða 6 umferðir (hraðmót) eftir Monrad kerfi.

Umhugsunartími: 15 mín. á skák. Þátttökurétt hafa börn úr grunnskólum Reykjavíkur í 1.-7. bekk.  Verðlaunaafhending verður að lokinni keppni.

 

Keppnisstaður:  Taflfélag Reykjavíkur, Faxafeni 12.

Eldri flokkur (8. – 10. bekkur).

Keppt verður í stúlkna og drengja flokkum. Heimilt er að senda A, B, C o.sfrv. stúlknasveitir og A, B, C o.s.frv. drengjasveitir.  Í hverri sveit eru 4 keppendur og 0-2 til vara.

Keppni í eldri flokki verður mánudaginn 6. desember kl. 17:00.

Tefldar verða 6 umferðir (hraðmót) eftir Monrad kerfi.

Umhugsunartími: 15. mín. á skák. Þátttökurétt hafa unglingar úr grunnskólum Reykjavíkur í 8.-10. bekk. Verðlaunaafhending verður að lokinni keppni.

 

 

Þátttaka tilkynnist til skrifstofu Íþrótta- og tómstundasviðs Reykjavíkur eigi síðar en föstudaginn 3. desember.

Skráning sendist á netfang: soffia.palsdottir@reykjavik.is