Jólaskákmót grunnskóla Reykjavíkur fer fram sunnudaginn 24. nóvember



JólamotLogo_simple 2019

Jólaskákmót grunnskóla Reykjavíkur verður haldið í húsnæði TR að Faxafeni 12 sunnudaginn 24. nóvember. Mótið er sem fyrr samstarfsverkefni Skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar og Taflfélags Reykjavíkur. Mótinu verður skipt í þrennt; 1.-3. bekkur, 4.-7. bekkur og 8.-10. bekkur.

Tefldar verða 6 umferðir með umhugsunartímanum 5 mínútur fyrir hverja skák og bætast 3 sekúndur við eftir hvern leik (5+3). Allir grunnskólar Reykjavíkurborgar eru hvattir til þess að senda skáksveitir í mótið. Engar takmarkanir eru á fjölda skáksveita og er skáksveitum hvers skóla styrkleikaraðað með bókstöfum (a-sveit, b-sveit, c-sveit og svo framvegis). Í hverri skáksveit tefla 4 keppendur og má hver sveit hafa 0-2 varamenn. Keppanda er heimilt að tefla í eldri flokki en aldur hans segir til um, en þó má einungis tefla í einum flokki (sem dæmi þá má keppandi í 3.bekk tefla í flokki 4.-7.bekkjar, en hann getur þá ekki teflt í flokki 1.-3.bekkjar). Mikilvægt er að liðsstjóri fylgi liðum hvers skóla og er æskilegt að hver liðsstjóri stýri ekki fleiri en þremur liðum.

Dagskrá mótsins:

  • Sun 24. nóv kl. 09:30 – 12:00 – 1.-3. bekkur.
  • Sun 24. nóv kl. 12:30 – 15:00 – 4.-7. bekkur.
  • Sun 24. nóv kl. 15:30 – 18:00 –  8.-10. bekkur.

Veitt verða verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í hverjum flokki. Einnig fær efsta stúlknasveit hvers flokks verðlaun.

Skráning fer fram í gegnum skráningarform sem finna má í gula kassanum á skak.is. Skráningu lýkur laugardaginn 23. nóvember klukkan 20:00. Ekki verður hægt að skrá lið á mótsstað. Fylgjast má með skráningu hér.

Mælst er til þess að liðsstjórar og keppendur mæti tímanlega svo mótahald geti hafist á tilsettum tíma.