Jólamót TR og SFS fer fram á sunnudag og mánudag



Yngri flokkur (1. – 7. bekkur)

Keppnisstaður: Taflfélag Reykjavíkur, Faxafeni 12

 Keppt verður í stúlkna og drengja flokkum (opnum flokkum). Heimilt er að senda A, B, C o.s.frv. stúlknasveitir og A, B, C o.s.frv. drengjasveitir. Í hverri sveit eru 4 keppendur og 0-2 til vara. 

Í yngri flokki verður keppt í tveimur riðlum sunnudaginn 30. nóvember.

Suður riðill hefur keppni kl. 10.30 (sjá skóla hér að neðan)

 Norður riðill hefur keppni kl. 14.00 (sjá skóla hér að neðan)

Tefldar verða 6 umferðir (hraðmót) eftir Monrad kerfi. Umhugsunartími: 10 mín. á skák. Þátttökurétt hafa börn úr grunnskólum Reykjavíkur í 1.-7. bekk. Mikilvægt er að liðsstjóri fylgi liðum hvers skóla. Verðlaunaafhending verður að lokinni keppni.

Tvær efstu sveitir í hvorum riðli munu keppa til úrslita við sveitirnar úr hinum riðlinum um þrjú efstu sætin mánudaginn 1. desember kl. 17:00.

 

 

Eldri flokkur (8. – 10. bekkur).

Keppnisstaður: Taflfélag Reykjavíkur, Faxafeni 12

Keppt verður í stúlkna og drengja flokkum (opnum flokkum). Heimilt er að senda A, B, C o.sfrv. stúlknasveitir og A, B, C o.s.frv. drengjasveitir. Í hverri sveit eru 4 keppendur og 0-2 til vara.

Keppni í eldri flokki verður mánudaginn 1. desember kl. 17:00. Tefldar verða 6 umferðir (hraðmót) eftir Monrad kerfi. Umhugsunartími: 15. mín. á skák. Þátttökurétt hafa unglingar úr grunnskólum Reykjavíkur í 8.-10. bekk. Verðlaunaafhending verður að lokinni keppni.   Þátttaka í báða flokka tilkynnist til skrifstofu Skóla- og frístundasviðs Reykjavíkur eigi síðar en föstudaginn 28. nóvember. Ekki verður hægt að skrá lið á mótsstað. 

Skráning sendist á netfang:  soffia.palsdottir@reykjavik.is

Taflfélag Reykjavíkur og Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar vonast til að sem flestir þessara skóla sjái sér fært að senda sveitir til leiks á eitt af skemmtilegustu mótum vetrarins!   Skipting í riðla yngri flokks 

 Yngri flokkur – Suður riðill (kl. 10.30):

 Ártúnsskóli ● Breiðagerðisskóli ● Breiðholtsskóli ● Brúarskóli ● Fellaskóli ● Fossvogsskóli ● Grandaskóli ● Háaleitisskóli ● Hagaskóli ● Háteigsskóli ● Hlíðaskóli ● Hólabrekkuskóli ● Hraunkot ● Klettaskóli ● Melaskóli Norðlingaskóli ●  Réttarholtsskóli ● Selásskóli ● Seljaskóli ● Suðurhlíðarskóli ● Ölduselsskóli Yngri flokkur – Norður riðill (kl. 14:00): Árbæjarskóli ● Austurbæjarskóli ● Dalsskóli ● Foldaskóli ● Hamraskóli ● Húsaskóli Ingunnarskóli ● Ísaksskóli ● Kelduskóli ● Klébergsskóli ● Landakotsskóli ● Langholtsskóli Laugalækjaskóli ● Laugarnesskóli ● Rimaskóli ● Sæmundarskóli ● Vættaskóli Vesturbæjarskóli ● Vogaskóli