Íslandsmót skákfélaga: seinni hlutinn hefst í kvöld



Úrslitin munu ráðast á Íslandsmóti skákfélaga á laugardag, en síðari hluti keppninnar fer fram í Rimaskóla um helgina.  Taflfélag Reykjavíkur hefur góða forystu í fyrstu deild, hefur 3,5 vinnings forskot á Íslandsmeistara Taflfélagsins Hellis og Skákdeild Hauka.  Fjölnismenn eru þar skammt undan og hafa þessi fjögur lið raunhæfan möguleika á sigri.  

Í lokaumferð mótsins mætast TR og Hellir og gæti þar verið um ræða hreina úrslitaviðureign um titilinn.   Í 2. deild eru Bolvíkingar langefstir, í 3. deild eru KR-ingar efstir og í 4. deild er b-sveit Bolvíkinga efst.  

Íslandsmót skákfélaga er langstærsta skákhátíð ársins en í hverri umferð tefla um 350 skákmenn á öllum aldri og á öllum styrkleika, báðum kynjum, byrjendum og sterkustu stórmeisturum Íslands og heims!  

Fimmta umferð fer fram á kvöld og hefst kl. 20, sjötta og sjöunda umferð fara fram á laugardag og hefjast kl. 11 og 17.  

  • Heimasíða mótsins
  • Chess-Results
  • Pistill Gunnars Björnssonar
  • Úrslita Excel-skjal

www.skak.is

Þeir TRingar sem eru skráðir til leiks í kvöld, föstudag, eru beðnir að mæta 19.45 svo hægt sé að hafa umsjón með, að allir séu mættir.