Hraðskákmót öðlinga fer fram á morgun



Hraðskákmót öðlinga fer fram á morgun 8. maí kl. 19.30 í félagsheimili T.R. að Faxafeni 12.Mótið er opið fyrir alla 40 ára og eldri (f. 1972 og síðar). Tefldar verða 7 umferðir með 7 mín. umhugsunartíma. Í lok mótsins fer fram verðlaunaafhending fyrir Hraðskákmótið sem og Skákmót öðlinga sem lauk s.l. miðvikudagskvöld. Þátttökugjald er kr. 500 og er í því innifalið kaffi og góðgæti. Skákmenn 40+ eru hvattir til að fjölmenna!