Haustmótið hefst á morgun: Skráningu í lokaða flokkar lýkur klukkan 22 í dag!



Haustmót Taflfélags Reykjavíkur 2020 hefst sunnudaginn 13. september kl. 13:00. Mótið, sem var fyrst haldið árið 1934, er eitt af aðalmótum vetrarins í reykvísku skáklífi og er jafnframt meistaramót Taflfélags Reykjavíkur. Mótið er flokkaskipt, öllum opið og verður reiknað til alþjóðlegra skákstiga. Haustmótið fer fram í félagsheimili Taflfélags Reykjavíkur að Faxafeni 12. Mótið í ár er 120 ára afmælismót Taflfélags Reykjavíkur og er því einkar glæsilegt í ár.

Núverandi skákmeistari Taflfélags Reykjavíkur er Guðmundur Kjartansson, hann var auk þess sigurvegari mótsins í fyrra.

FYRIRKOMULAG:

Tefldar verða níu umferðir í hverjum flokki. Lokuðu flokkarnir eru skipaðir tíu keppendum hver þar sem allir tefla við alla, en í opna flokknum er teflt eftir svissnesku kerfi. Í lokuðu flokkunum er keppendum raðað eftir skákstigum (miðað er við september stigalista FIDE).

Tímamörk í lokuðum flokkum eru 90 mínútur á fyrstu 40 leikina. Að loknum 40 leikjum bætast við 15 mínútur. 30 sekúndur bætast við eftir hvern leik alla skákina. Tímamörk í opnum flokki eru 60 mínútur auk þess sem 30 sekúndur bætast við eftir hvern leik alla skákina (60+30). Enginn viðbótartími er eftir 40 leiki í opnum flokki. Sjálfkrafa tap dæmist á keppanda sem mætir á skákstað meira en 30 mínútum eftir upphaf umferðar.

Í opna flokknum eru leyfðar tvær yfirsetur (bye) í umferðum 1-5 og fæst 1/2 vinningur fyrir hvora yfirsetu. Tilkynna þarf skákstjóra um yfirsetu við upphaf umferðarinnar á undan. Yfirsetur eru ekki leyfðar í lokuðum flokkum.

Yfirdómari mótsins verður Jon Olav Fivelstad.

Keppendur í EM ungmenna í netskák athugið: Hægt verður að fresta skákum ykkar frá sunnudeginum 20. september til mánudagsins 21. september klukkan 19:30. 

DAGSKRÁ:

  1. umferð: Sunnudagur 13. september kl. 13:00
  2. umferð: Miðvikudagur 16. september kl. 19:30
  3. umferð: Föstudagur 18. september kl. 19:30
  4. umferð: Sunnudagur 20. september kl. 13:00
  5. umferð: Miðvikudagur 23. september kl. 19:30
  6. umferð: Föstudagur 25. september kl. 19:30
  7. umferð: Sunnudagur 27. september kl. 13:00
  8. umferð: Miðvikudagur 30. september kl. 19:30
  9. umferð: Föstudagur 2. október kl. 19:30

Teflt er á sunnudögum, miðvikudögum og föstudögum.

VERÐLAUN:

Verðlaun í A-flokki:
1. sæti kr. 200.000kr.
2. sæti kr. 100.000kr.
3. sæti kr. 50.000kr.
4. og 5. sæti fá frítt í Skákþing Reykjavíkur 2021.

Verðlaun í B-flokki:
1. sæti kr. 50.000kr.
2. og 3. sæti fá frítt í Skákþing Reykjavíkur 2021.

Verðlaun í Opnum flokki:
1. sæti kr. 25.000kr.
2. og 3. sæti ókeypis í Skákþing Reykjavíkur 2021.
Stigaverðlaun (verðlaunagripur) fyrir stigalausa, U1200 og U1400.

Sigurvegari hvers flokks áskilur sér þátttökurétt í næsta styrkleikaflokki að ári liðnu. Verði keppendur í A-flokki jafnir að vinningum í efstu sætum verður verðlaunafé skipt eftir Hort-kerfi. Lokaröð keppenda í öllum flokkum ákvarðast af mótsstigum (tiebreaks).

MÓTSSTIG (Tie-break):

Lokaðir flokkar: 1.Sonneborn-Berger 2.Innbyrðis úrslit 3.Fjöldi sigra.
Opinn flokkur: 1.Buchholz (-1) 2.Buchholz 3.Innbyrðis úrslit 4.Fjöldi sigra.

ÞÁTTTÖKUGJÖLD:

5.000kr fyrir 18 ára og eldri (3.500kr fyrir félagsmenn T.R. 18 ára og eldri).
3.000kr fyrir 17 ára og yngri (frítt fyrir félagsmenn T.R. 17 ára og yngri).

Vinsamlegast mætið tímanlega á skákstað til að staðfesta skráningu og greiða þátttökugjald. Þátttökugjöld greiðast með reiðufé við upphaf móts.

SKRÁNING:

Skráningu í alla lokaða flokka lýkur laugardaginn 12. september kl.22:00. Skráningu í opinn flokk lýkur 15 mínútum fyrir auglýst upphaf móts, þ.e. 13. september kl. 12:45.

Skráningarform

Þegar skráðir keppendur