Haustmót TR hefst næstkomandi miðvikudag



Haustmót Taflfélags Reykjavíkur 2017 hefst miðvikudaginn 6. september kl. 19.30. Mótið, sem er hið 84. í röðinni, er eitt af aðalmótum vetrarins í reykvísku skáklífi og er jafnframt meistaramót T.R. Mótið er flokkaskipt, öllum opið og verður reiknað til alþjóðlegra skákstiga.

Haustmótið fer fram í félagsheimili Taflfélags Reykjavíkur, skákhöllinni að Faxafeni 12. Tefldar verða þrjár umferðir á viku og eru alls níu umferðir í hverjum flokki. Lokuðu flokkarnir eru skipaðir tíu keppendum hver þar sem allir tefla við alla, en í opna flokknum er teflt eftir svissnesku kerfi. Í lokuðu flokkunum er keppendum raðað eftir Elo-skákstigum (september listi).

Skráningu í alla lokaða flokka lýkur þriðjudaginn 5. september kl. 22.

Lokaumferð fer fram sunnudaginn 24. september en mótinu lýkur formlega með verðlaunaafhendingu miðvikudaginn 27. september þegar Hraðskákmót TR fer fram.

Núverandi skákmeistari Taflfélags Reykjavíkur er Vignir Vatnar Stefánsson.

Dagskrá:

1. umferð: Miðvikudag 6. september kl. 19.30
2. umferð: Föstudag 8. september kl. 19.30
3. umferð: Sunnudag 10. september kl. 13:00
4. umferð: Miðvikudag 13. september kl.19.30
5. umferð: Föstudag 15. september kl. 19.30
6. umferð: Sunnudag 17. september kl. 13.00
7. umferð: Miðvikudag 20. september kl. 19.30
8. umferð: Föstudag 22. september kl. 19.30
9. umferð: Sunnudag 24. september kl. 13.00

Í opna flokknum eru leyfðar tvær yfirsetur (bye) í umferðum 1-6 og fæst 1/2 vinningur fyrir hvora yfirsetu. Tilkynna þarf skákstjóra um yfirsetu fyrir lok umferðarinnar á undan.

Sjálfkrafa tap dæmist á keppanda sem mætir á skákstað meira en 30 mínútum eftir upphaf umferðar.

Verðlaun í A-flokki:
1. sæti kr. 100.000
2. sæti kr. 50.000
3. sæti kr. 25.000
4. og 5. sæti ókeypis í Skákþing Reykjavíkur 2018

Verðlaun í B-flokki:
1. sæti kr. 20.000
2. og 3. sæti ókeypis í Skákþing Reykjavíkur 2018

Verðlaun í C-flokki:
1. sæti kr. 15.000
2. og 3. sæti ókeypis í Skákþing Reykjavíkur 2018

Verðlaun í opnum flokki:
1. sæti kr. 10.000
2. og 3. sæti ókeypis í Skákþing Reykjavíkur 2018
Stigaverðlaun 5.000kr skákbókainneign: stigalausir, U1200, U1400

Ef lokuðum flokkum fjölgar þá verða verðlaun í þeim þau sömu og í C-flokki. Að auki ávinnur sigurvegari hvers flokks sér þátttökurétt í næsta styrkleikaflokki að ári liðnu.

Verði keppendur í A-flokki jafnir að vinningum í efstu sætum verður verðlaunafé skipt eftir Hort-kerfi. Lokaröð keppenda í öllum flokkum ákvarðast af mótsstigum (tiebreaks).

Röð mótsstiga (tiebreaks):

Lokaðir flokkar: 1. Innbyrðis viðureign 2. Sonneborn-Berger 3. Fjöldi sigra
Opinn flokkur: 1. Innbyrðis viðureign 2. Buchholz (-1) 3. Buchholz

Tímamörk í lokuðum flokkum:
1 klst og 30 mín á fyrstu 40 leikina. Að loknum 40 leikjum bætast við 15 mínútur. 30 sekúndur bætast við eftir hvern leik alla skákina.

Tímamörk í opnum flokki:
60 mín auk þess sem 30 sekúndur bætast við eftir hvern leik alla skákina (60+30). Enginn viðbótartími eftir 40 leiki.

Þátttökugjöld (greiðist með reiðufé við upphaf móts):
3.500 kr. fyrir félagsmenn T.R. 18 ára og eldri (5.000 kr. fyrir aðra).
1.500 kr. fyrir félagsmenn T.R. 17 ára og yngri (2.500 kr. fyrir aðra).

Vinsamlegast mætið tímanlega á skákstað til að staðfesta skráningu og greiða þátttökugjald. Skráningu í opinn flokk lýkur 15 mínútum fyrir auglýst upphaf móts, þ.e. 6. september kl. 19.15. Skráningu í alla lokaða flokka lýkur þriðjudaginn 5. september kl. 22.

Skráningarform

Skráðir keppendur