Haustmót Taflfélags Reykjavíkur hefst sunnudaginn 8. september



Haustmót Taflfélags Reykjavíkur 2019 hefst sunnudaginn 8. september kl. 13:00. Mótið, sem var fyrst haldið árið 1934, er eitt af aðalmótum vetrarins í reykvísku skáklífi og er jafnframt meistaramót Taflfélags Reykjavíkur. Mótið er flokkaskipt, öllum opið og verður reiknað til alþjóðlegra skákstiga. Haustmótið fer fram í félagsheimili Taflfélags Reykjavíkur að Faxafeni 12.

Núverandi skákmeistari Taflfélags Reykjavíkur er Þorvarður F. Ólafsson. Sigurvegari Haustmótsins árið 2018 var Vignir Vatnar Stefánsson úr Skákdeild Breiðabliks.

 

FYRIRKOMULAG:

Tefldar verða sjö umferðir í hverjum flokki. Lokuðu flokkarnir eru skipaðir átta keppendum hver þar sem allir tefla við alla, en í opna flokknum er teflt eftir svissnesku kerfi. Í lokuðu flokkunum er keppendum raðað eftir skákstigum (miðað er við september stigalista FIDE).

Tímamörk í lokuðum flokkum eru 90 mínútur á fyrstu 40 leikina. Að loknum 40 leikjum bætast við 15 mínútur. 30 sekúndur bætast við eftir hvern leik alla skákina. Tímamörk í opnum flokki eru 60 mínútur auk þess sem 30 sekúndur bætast við eftir hvern leik alla skákina (60+30). Enginn viðbótartími er eftir 40 leiki í opnum flokki. Sjálfkrafa tap dæmist á keppanda sem mætir á skákstað meira en 30 mínútum eftir upphaf umferðar.

Í opna flokknum eru leyfðar tvær yfirsetur (bye) í umferðum 1-5 og fæst 1/2 vinningur fyrir hvora yfirsetu. Tilkynna þarf skákstjóra um yfirsetu við upphaf umferðarinnar á undan. Yfirsetur eru ekki leyfðar í lokuðum flokkum.

Yfirdómari mótsins verður Ríkharður Sveinsson (s: 772 2990).

 

DAGSKRÁ:

1. umferð: Sunnudagur 8. september kl. 13:00
2. umferð: Miðvikudagur 11. september kl. 19:30
3. umferð: Föstudagur 13. september kl. 19:30
4. umferð: Sunnudagur 15. september kl. 13:00
5. umferð: Miðvikudagur 18. september kl. 19:30
6. umferð: Föstudagur 20. september kl. 19:30
7. umferð: Sunnudagur 22. september kl. 13:00

Teflt er á sunnudögum, miðvikudögum og föstudögum. Mótinu lýkur formlega með verðlaunaafhendingu miðvikudaginn 25. september þegar Hraðskákmót Taflfélags Reykjavíkur verður haldið.

 

VERÐLAUN:

Verðlaun í A-flokki:
1. sæti kr. 100.000kr.
2. sæti kr. 50.000kr.
3. sæti kr. 25.000kr.
4. og 5. sæti fá frítt í Skákþing Reykjavíkur 2020.

Verðlaun í B-flokki:
1. sæti kr. 20.000kr.
2. og 3. sæti fá frítt í Skákþing Reykjavíkur 2020.

Verðlaun í C-flokki:
1. sæti kr. 15.000kr.
2. og 3. sæti fá frítt í Skákþing Reykjavíkur 2020.

Verðlaun í Opnum flokki:
1. sæti kr. 10.000kr.
2. og 3. sæti ókeypis í Skákþing Reykjavíkur 2020.
Stigaverðlaun (verðlaunagripur) fyrir stigalausa, U1200 og U1400.

Ef lokuðum flokkum fjölgar þá verða verðlaun í þeim þau sömu og í C-flokki. Að auki ávinnur sigurvegari hvers flokks sér þátttökurétt í næsta styrkleikaflokki að ári liðnu. Verði keppendur í A-flokki jafnir að vinningum í efstu sætum verður verðlaunafé skipt eftir Hort-kerfi. Lokaröð keppenda í öllum flokkum ákvarðast af mótsstigum (tiebreaks).

 

MÓTSSTIG (Tie-break):

Lokaðir flokkar: 1.Sonneborn-Berger 2.Innbyrðis úrslit 3.Fjöldi sigra.
Opinn flokkur: 1.Buchholz (-1) 2.Buchholz 3.Innbyrðis úrslit 4.Fjöldi sigra.

 

ÞÁTTTÖKUGJÖLD:

5.000kr fyrir 18 ára og eldri (3.500kr fyrir félagsmenn T.R. 18 ára og eldri).
3.000kr fyrir 17 ára og yngri (frítt fyrir félagsmenn T.R. 17 ára og yngri).

Vinsamlegast mætið tímanlega á skákstað til að staðfesta skráningu og greiða þátttökugjald. Þátttökugjöld greiðast með reiðufé við upphaf móts.

 

SKRÁNING:

Skráningu í alla lokaða flokka lýkur laugardaginn 7. september kl.22:00. Skráningu í opinn flokk lýkur 15 mínútum fyrir auglýst upphaf móts, þ.e. 8. september kl. 12:45.

 

Skráningarform

Skráðir keppendur