Háteigsskóli, Rimaskóli og Ölduselsskóli Reykjavíkurmeistarar grunnskóla



20180212_175948

Reykjavíkurmót grunnskólasveita fór fram mánudagana 12. febrúar og 19. febrúar í húsnæði Taflfélags Reykjavíkur sem heldur mótið í samstarfi við Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar. Mótið var nú með nýju fyrirkomulagi þar sem skipt var í þrjá flokka; 1.-3. bekk, 4.-7. bekk og 8.-10. bekk. Sigurvegarar í flokki 1.-3. bekkja var Háteigsskóli, í flokki 4.-7. bekkja sigraði Rimaskóli og í flokki 8.-10. bekkja hreppti Ölduselsskóli gullið.

20180219_174318

Það var fríður flokkur barna sem reið á vaðið í yngsta aldurhópnum fyrri keppnisdaginn en alls mættu 15 sveitir til leiks. Flestar voru sveitirnar frá Ingunnarskóla eða fimm talsins en Landakotsskóli mætti með fjórar sveitir. Keppnin var jöfn og spennandi en Háteigsskóli náði snemma forystunni og hélt henni allt mótið þó svo að sveit Rimaskóla hafi aldrei verið langt undan. Töluverð spenna var síðan um þriðja sætið og réðust úrslit ekki fyrr en á lokametrunum.

Sigursveitin í 1.-3. bekk: Háteigsskóli

Sigursveitin í 1.-3. bekk: Háteigsskóli

Að loknum umferðunum sjö höfðu liðsmenn Háteigsskóla halað inn flestum vinningunum eða 22 alls, þremur meira en sveit Rimaskóla sem hlaut annað sætið með 19 vinninga. Þriðja sætið féll svo í skaut Árbæjarskóla sem nældi í 17 vinninga. Aðeins munaði 1 vinningi á þriðja sætinu og áttunda sætinu. Efst stúlknasveita var sveit Rimaskóla sem lauk keppni í 5. sæti með 16,5 vinning.

20180219_182229

Viku síðar var svo komið að næstu tveimur aldursflokkum og hóf sá fyrri leikinn nánast á slaginu 16.30 eins og auglýst hafði verið. Munaði þar miklu um stundvíslega mætingu liðsstjóra og keppenda. Að þessu sinni voru 16 sveitir mættar til leiks og því ljóst að skottu gömlu yrði sparkað úr mótinu sem er alltaf ánægjulegt. Tvær stúlknasveitir voru skráðar en Rimaskóli sendi flestar sveitirnar til leiks, eða fimm, þar af eina stúlknasveit.

Sigursveitin í 4.-7. bekk: Rimaskóli

Sigursveitin í 4.-7. bekk: Rimaskóli

Rimaskóli hafði allnokkra yfirburði í mótinu enda fyrnasterk sveit þar á ferð með hinn reynslumikla Joshua Davíðsson á efsta borði. Fór svo að Rimaskóli varð langefstur með 25 vinninga af 28. Baráttan um næstu sæti var harðari en þegar yfir lauk kom sveit Háteigsskóla önnur í mark með 19,5 vinning, hálfum vinningi meira en B-sveit Rimaskóla sem varð þriðja með 19 vinninga. Efsta stúlknasveitin kom einnig úr Rimaskóla en hún hlaut 13 vinninga og hafnaði í 10. sæti. Sérstaklega góð frammistaða hjá Rimaskóla í þessum aldursflokki.

Sigursveitin í 8.-10. bekk: Ölduselsskóli

Sigursveitin í 8.-10. bekk: Ölduselsskóli

Eins og áætlað var lauk mótinu kl. 19 og eftir verðlaunaafhendingu hófst strax á eftir keppni í elsta aldursflokknum þar sem fimm sveitir mættu til leiks, þar af ein stúlknasveit sem kom úr hinum mikla skákskóla, Rimaskóla. Ákveðið var að tefla fimm umferðir allir við alla þar sem ein sveit sat yfir í hverri umferð. Fljótlega kom í ljós að sveit Ölduselsskóla hafði nokkra yfirburði og að sveit Laugalækjarskóla væri líklegust til að veita henni keppni. 3-1 sigur reynslumikilla liðsmanna Ölduselsskóla á Laugalækjarskóla strax í annari umferð lagði línurnar fyrir framhaldið og svo fór að hinir fyrrnefndu stóðu uppi sem sigurvegarar með 14 vinninga af 16 en þeir síðarnefndu höfnuðu í öðru sæti með 11 vinninga. Breiðholtsskóli nældi svo í þriðja sætið með 5,5 vinning og sem eina stúlknasveitin í mótinu hlaut sveit Rimaskóla stúlknaverðlaunin.

Vel heppnuðu Reykjavíkurmóti grunnskólasveita er því lokið þetta árið og ljóst má vera að allar líkur eru á því að sama fyrirkomulag verði haft að ári. Við óskum sigurvegurunum til hamingju og hlökkum til mótsins 2019!