Hannes og Stefán efstir TR-inga á Rvk open



Hannes Hlífar Stefánsson (2563) gerði jafntefli við alþjóðlega meistarann Nils Grandelius (2464) í fjórðu umferð Reykjavíkurmótsins sem fram fór í dag.  Stefán Kristjánsson (2472), Björn Jónsson (2012) og Geirþrúður Anna Guðmundsdóttir (1775) unnu einnig sínar skákir.  Víkingur Fjalar Eiríksson (1882), Kristján Örn Elíasson (1940) og Frímann Benediktsson (1939) gerðu allir jafntefli við mun stigahærri andstæðinga en bæði Kristján og Frímann hafa byrjað vel í mótinu og eru í góðum stigagróða.  Sömuleiðis gerðu Þröstur Þórhallsson (2442) og Hörður Garðarsson (1951) jafntefli í sínum skákum.  Guðmundur, Páll og Birkir töpuðu sínum skákum.

Í fimmtu umferð mætir Stefán stigahæsta keppanda mótsins, úkraínska stórmeistaranum Alexander Areshchenko (2673) og Hannes mætir þýska alþjóðlega meistaranum Dennis Breder.

Eftirfarandi meðlimir Taflfélags Reykjavíkur taka þátt:

  • SM Hannes Hlífar Stefánsson (2563)
  • AM Stefán Kristjánsson (2472)
  • SM Þröstur Þórhallsson (2442)
  • FM Guðmundur Kjartansson (2365)
  • Björn Jónsson (2012)
  • Hörður Garðarsson (1951)
  • Kristján Örn Elíasson (1940)
  • Frímann Benediktsson (1939)
  • Víkingur Fjalar Eiríksson (1882)
  • Geirþrúður Anna Guðmundsdóttir (1775)
  • Páll Andrason (1564)
  • Birkir Karl Sigurðsson (1355)
  • Fimmta umferð fer fram á morgun, laugardag, og hefst kl. 16 en teflt er í Listasafni Reykjavíkur við Tryggvagötu.

    Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu mótsins og heimasíðu Skáksambands Íslands.