Guðmundur í 1.-2. sæti á Skákskólamótinu



Guðmundur Kjartansson úr T.R. varð í 1.-2. sæti á Meistaramóti Skákskóla Íslands 2007 ásamt Hjörvari Steini Grétarssyni.  

Guðmundur sigraði Hellisdrenginn Hjörvar í innbyrðis viðureign, en tapaði nokkuð óvænt fyrir Vilhjálmi Pálmasyni, sem líka er félagi í T.R.

Röð efstu manna:

1.-2. Guðmundur Kjartansson og Hjörvar Steinn Grétarsson 6 v. ( af 7 )
3. Dagur Arngrímson 5 ½ v.
4.-6. Sverrir Þorgeirsson, Ingvar Ásbjörnsson og Aron Ingi Óskarsson 5 v.
7.-10. Vilhjálmur Pálmason, Tinna Kristín Finnbogardóttir, Jóhanna Björg Jóhannsdóttur og Einar Sigurðsson öll með 4 ½ vinning.

Nánari upplýsingar má finna á Skák.is