Fimmtudagsmót í kvöld – aukaverðlaun í boði!



Hin hefðbundnu fimmtudagsmót Taflfélags Reykjavíkur halda áfram í kvöld en því miður féll mótið niður síðastliðinn fimmtudag.  Tefldar verða 9 umferðir með 7 mínútna umhugsunartíma og hefst mótið kl. 19.30 en húsið opnar kl. 19.10.  Fríar veitingar í boði og sigurvegarinn fær að launum glæsilegan verðlaunapening.  Teflt er í skákhöll Taflfélags Reykjavíkur að Faxafeni 12 og þátttökugjald er kr 500 en frítt fyrir 15 ára og yngri.

Þetta er fyrsta mót apríl mánaðar og því verða aukaverðlaun í boði fyrir sigurvegarann.

Einnig er rétt að minna á að í lok tímabilsins, líklegast fyrri hluta maí mánaðar, fara allir þeir sem mætt hafa á minnst fimm mót í vetur saman í pott sem dregið verður úr í happdrætti.  Hæsti vinningur verður kr. 40.000 og eiga þeir sem oftast hafa mætt mestan möguleika á að vera dregnir út.