Eiríkur Örn sigraði á fimmtudagsmóti



Eiríkur Örn Brynjarsson varð hlutskarpastur á síðastliðnu fimmtudagsmóti, með fimm sigra og tvö jafntefli, og var jafnframt eini taplausi keppandinn.

Elsa María leiddi mótið lengi vel, en hún tapaði einungis fyrir Eiríki. Hún fékk einnig 6 vinninga, en var lægri á stigum. Í þriðja sæti var svo Jón Úlfljótsson með 5 vinninga.

Þátttakendur voru 21 á þessu hvassviðrasama kvöldi. En eins og allir vita er bara notalegt að tefla þegar veðrið er snarvitlaust og auk þess er alltaf heitt á könnunni og meðlæti fyrir unga sem aldna á Fimmtudagsmótunum í T.R.

 

Skákstjóri var Sigurlaug Regína Friðþjófsdóttir.

 

Úrslit:

 

1. Eiríkur Örn Brynjarsson 6 v. af 7.

2. Elsa María Kristínardóttir 6 v.

3. Jón Úlfljótsson 5 v.

4. Páll Andrason 4,5 v,

5. Hörður Aron Hauksson 4,5 v.

6. Oliver Aron Jóhannesson 4 v.

7. Stefán Már Pétursson 4 v.

8. Jón Trausti Harðarson 4 v.

9. Birkir Karl Sigurðsson 4 v. 

10.  Patrekur M. Magnússon 4 v.  

11. Jon Olav Fivelstad 4 v.

12. Kristinn Andri Kristinsson 3,5 v.

13. Vignir Vatnar Stefánsson 3 v.

14. Gunnar Ingibergsson 3 v.

15. Veronika Steinunn Magnúsdóttir 3 v.

16. Óskar Long Einarsson 3 v.

17. Kjell Vaalerhaugen 3 v.

18. Eyþór Trausti Jóhannsson 3 v.

19. Ingvar Vignisson 2,5 v.

20. Björgvin Kristbergsson 2 v.

21. Pétur Jóhannesson 1 v.