Davíð Kjartansson efstur á öðru móti Brim-mótaraðarinnar!



 

Davíð Kjartansson vann glæsilegan sigur á öðru móti Brim-mótaraðarinnar sem lét sannarlega bíða eftir sér. Mótið hafði tvisvar auglýst þegar glufur höfðu myndast í skákdagatalinu vegna rýmkana á samkomutakmörkum (vegna smitsjúkdómsins Covid-19 sem herjaði á heimsbyggðinni allavega árið 2020 og 2021 kæru framtíðarlesendur) en í nánast beinu framhaldi komu auknar takmarkanir og slá þurfti mótin af. Gárungarnir sögðu að von væri jafnvel á eldgosi eftir að þriðja mótið yrði auglýst! En svo var ekki. Það liðu nefnilega heilir fimm dagar frá því stjórn TR ákvað dagsetningu fyrir þriðja mótið og gos hófst í Geldingsdal!

Davíð hlaut 6.5 vinning af 7 í mótinu, virkilega traust. Þannig tryggði hann sér fyrsta sætið í stigakeppninni, einu stigi fyrir ofan næsta mann, Vigni Vatnar. Í öðru sæti varð Símon Þórhallsson með 5.5 vinning, en hann vann stórmeistara í fyrsta sinn í kappskák í mótinu er hann lagði Helga Áss Grétarsson. Helgi, Lenka Ptacnikova, Vignir Vatnar og Alexander Oliver Mai hlutu 5 vinninga. Gaman að segja frá því að af þeim sex efstu í mótinu eru fjórir þáttakendur í landsliðsflokki sem hefst fljótlega! Það eru Davíð, Helgi, Vignir og Alexander. Þeir sem hækkuðu mest á stigum á mótinu voru þeir Kristján Dagur Jónsson og Matthías Björgvin Kjartansson.

brimfeb21_1

Mótið var haldið helgina 26-28. febrúar undir dyggri stjórn Ríkharðs Sveinssonar og Ólafs Ásgrímssonar. Blönduð at- og kappskákmót eru oft nokkuð vinsæl, og að lokinni síðustu umferð var haldið hefðbundið hraðskákmót. Þar hlaut Vignir Vatnar Stefánsson 8.5 vinning af 9 og nældi sér í eitt auka stig í stigakeppninni. Næstir í hraðskákinni urðu þeir Örn Leó Jóhannsson, Bragi Halldórsson og Jóhann Ingvason með 6.5 vinning, allt grjótharðir hraðskákmenn.

 

Hlekkur á stöðu og úrslit mótsins.

Hlekkur á stöðu og úrslit hraðskákmótsins.

Hlekkur á frétt fyrsta mótsins.

Staðan í stigakeppninni, samanlögð stig tveggja fyrstu mótanna:

  1. Davíð Kjartansson 21 stig
  2. Vigni Vatnar Stefánsson 20 stig
  3. Lenka Ptacnkikova 14 stig
  4. Alexander Oliver Mai 10 stig
  5. Símon Þórhallsson 9 stig
  6. Helgi Áss Grétarsson 8 stig
  7. Guðmundur Kjartansson 8 stig
  8. Jóhann Ragnarsson 6 stig
  9. Örn Leó Jóhannsson 4 stig
  10. Elvar Már Sigurðsson 4 stig
  11. Arnar Heiðarsson 3 stig
  12. Jóhanna Björg Jóhannsdóttir 3 stig
  13. Gauti Páll Jónsson 2 stig
  14. Jon Olav Fivelstad 2 stig
  15. Ólafur Kristjánsson 1 stig
  16. Aron Þór Mai 1 stig

Næsta mót fer fram í TR helgina 23.-25. apríl. Nánari auglýsing um mótið birtist síðar í vikunni! 

Upplýsingar um stigakeppnina: 

Verðlaunasjóður fyrir samanlagðan árangur í mótunum sex:

Heildarkeppnin:

  1. 125.000kr.
  2. 75.000kr.
  3. 50.000kr.

Efsta skákkonan: 33.000kr.

Efstur U1900 skákstigum, júní listinn 2020: 33.000kr.

Efstur 17 ára og yngri: 33.000

Mótið er reiknað til alþjóðlegra skákstiga.

Oddastig (tiebreaks): 1. Buchholz (-1) 2. Buchholz 3. Innbyrðis úrslit 4. Sonneborn-Berger 5. Oftar svart.

Stigakeppnin virkar þannig að stig eru veitt fyrir efstu 10. sætin. 1 stig fyrir 10. sæti, 2. stig fyrir 9. sæti og svo framvegis. Í 1. sæti í hverju móti verða hins vegar 12 stig veitt. Aukastig fyrir sigur í hraðskákmótinu eftir aðalmótið. Stigakeppnir  með sama sniði verða einnig notaðar til að reikna út aukaverðlaunin. Fjögur bestu mót hvers þáttakanda gilda í stigakeppninni

Nokkrar myndir frá aðalmótunum og hraðskákinni:

brimfeb21_6

brimfeb21_7

brimfeb21_5

brimfeb21_4

brimfeb21_2