Borgarskákmótið haldið miðvikudaginn 21.ágúst kl.16



Borgarskákmótið fer fram miðvikudaginn 21. ágúst, og hefst það kl. 16:00. Líkt og undanfarin ár fer mótið fram í Ráðhúsi Reykjavíkur og standa Taflfélag Reykjavíkur og Skákfélagið Huginn að mótinu.

Tefldar verða 7 umferðir með umhugsunartímanum 4 mínútur + 2 sekúndur á leik (4+2). Mótið verður reiknað til hraðskákstiga og er öllum opið. Þátttaka er ókeypis en skráning fer fram á Skák.is (guli kassinn)Skákmenn eru hvattir til að skrá sig sem fyrst til að liðka fyrir mótshaldi.

Þetta er í 34. sinn sem mótið fer fram og er þetta iðulega eitt best sótta skákmót hvers árs. Gera má ráð fyrir að margir af sterkustu skákmönnum þjóðarinnar verði á meðal keppenda. Í fyrra sigraði Helgi Áss Grétarsson, sem þá tefldi fyrir Hlaðbæ Colas.

Verðlaun:

1.sæti 30.000 kr.

2.sæti 20.000 kr.

3.sæti 10.000 kr.

Upplýsingar um skráða keppendur eru hér