Barna- og unglingameistaramót Reykjavíkur fer fram á sunnudaginn



barnaungl

Barna- og unglingameistaramót Reykjavíkur, sem jafnframt er Stúlknameistaramót Reykjavíkur, fer fram sunnudaginn 25. febrúar í félagsheimili T.R. að Faxafeni 12. Taflið hefst kl.13 og stendur til ca. kl. 17. Tefldar verða 7 umferðir eftir svissnesku kerfi með umhugsunartímanum 10 mínútur á skák, auk þess sem 5 sekúndur bætast við eftir hvern leik (10+5).

Mótið verður reiknað til alþjóðlegra atskákstiga.

Mótið er opið öllum börnum og unglingum, óháð taflfélagi eða búsetu, sem eru fædd árið 2002 eða síðar. Teflt verður í tveimur flokkum: opnum flokki og stúlknaflokki.

Verðlaun verða veitt fyrir þrjú efstu sætin í mótinu. Nafnbótina Unglingameistari Reykjavíkur 2018 hlýtur sá keppandi sem verður hlutskarpastur þeirra sem hafa lögheimili í Reykjavík eða eru meðlimir í reykvísku taflfélagi. Einnig verða veitt verðlaun fyrir þrjár efstu stúlkurnar. Nafnbótina Stúlknameistari Reykjavíkur 2018 hlýtur sú stúlka sem verður hlutskörpust þeirra stúlkna sem hafa lögheimili í Reykjavík eða eru meðlimir í reykvísku taflfélagi.

Til viðbótar verða veitt verðlaun fyrir efsta sætið í árgöngum 2002-2003, 2004-2005, 2006-2007, 2008-2009 sem og 2010 og yngri í báðum flokkum (opna flokknum og stúlknaflokknum).

Núverandi Reykjavíkurmeistarar eru Vignir Vatnar Stefánsson og Batel Goitom.

Skákmótið hefst kl. 13 og er aðgangur ókeypis. Skráning í mótið fer fram rafrænt og má nálgast skráningarformið hér. Einnig má finna skráningarformið í gula kassanum á skak.is. Upplýsingar um þegar skráða keppendur má nálgast hér.