Þriðjudags og fimmtudagsmót TR



20180909_150243

Vikuleg skákmót

Þriðjudags- og fimmtudagsmót TR eru haldin allt árið um kring, nema þegar þriðjudagarnir eða fimmtudagarnir lenda á stórhátíðum (jól, áramót) eða öðrum stærri skákmótum á vegum félagsins.

Á þriðjudögum er tefld atskák, en atskákir eru yfirleitt í krignum 10-30 mínútur á mann. Á þriðjudagsmótum eru tefldar fimm skákir með tímamörkunum 10+5 en það þýðir að 10 mínútur séu á mann, og 5 sekúndur bætast við eftir hvern leik.

Á fimmtudögum er tefld hraðskák, hraðskákir eru þegar minna en 10 mínútúr eru á klukkunni. Tímamörkin eru 3+2, en þá eru 3 mínútur á mann og 2 sekúndur bætast við eftir hvern leik.

Mótin eru opin öllum og hefjast stundvíslega klukkan 19:30. Þátttökugjald er 1000 kr. og 500 kr fyrir 17 ára og yngri. Veittur er aflsáttur fyrir félagsmenn. Mótin eru reiknuð til alþjóðlegra hraðskák- og atskákstiga.

Haldin eru þriðjudags- og fimmtudagsmót, alltaf nema þessa daga árið 2026:

  • Þriðjudaginn 24. desember 2026 vegna aðfangadags
  • Fimmtudaginn 31. desember 2026 vegna gamlársdags